Fullkomin gjöf fyrir þá sem hafa áhuga á víni.
Í Vínskólanum fræðumst við á líflegan hátt um 7 mismunandi vín sem við smökkum undir leiðsögn vínsérfræðings.
Námskeiðið tekur eina kvöldstund og markmiðið með því er að læra betur inn á hvað það er sem okkur finnst gott þegar kemur að víni.
Gjafabréfin koma í fallegu umslagi með vax innsigli Vínskólans og gilda í tvö ár frá útgáfudegi. Engar áhyggjur samt, við erum liðleg með dagsetningarnar. 🍷
Hvert gjafabréf gildir fyrir einn á öll opin námskeið Vínskólans.
Skilmála gjafabréfanna má finna hér.
Við hlökkum til að taka á móti þér í Vínskólanum! 🥂